Monthly Archives: febrúar 2013

Páskabingó 2013

Kæru Íslendingar.

Páskabingó ÍFK, verður haldið sunnudaginn 24. mars 2013, kl. 14:00, í Jónshúsi. Um er að ræða atburð fyrir alla fjölskylduna. Spilaðar verða sex umferðir þar sem í verðlaun eru vegleg íslensk páskaegg. Skráning og greiðsla (20 kr fyrir 1 blað með 3 bingóspjöldum) er nauðsynleg og fer fram hér. Félagar í ÍFK fá 1 blað ókeypis. Takmarkaður fjöldi þátttakenda.

Allir taka með sér góðgæti á kaffihlaðborðið!

Með páskakveðju,
Stjórnin

Matarboð félaga í ÍFK

Íslendingafélagið í Kaupmannahöfn býður félagsmönnum sínum að þiggja kvöldmat – íslenskt lambalæri með meðlæti – í Jónshúsi, laugardaginn 2. mars kl. 19:00. Húsið verður opnað kl. 18:30. Ath. takmarkaður fjöldi. Skráning og greiðsla skráningargjalds (100 kr) er nauðsynleg og fer fram hér. Skuldlausir félagar í ÍFK fá síðan skráningargjaldið endurgreitt um kvöldið.