Um Íslendingaflagið í Kaupmannahöfn
Íslendingaflagið í Kaupmannahöfn var stofnað árið 1887 og hefur starfað óslitið allar götur síðan. Flagið hefur aðsetur í Jónshúsi.
Stjórn Íslendingaflagsins starfsárið 2009 - 2010 skipa:
Sigurður Björnsson, formaður (´09)
Anne Gísladóttir, gjaldkeri (´09)
Helga Huld Halldórsdóttir, ritari (´09)
Reynir Kristbjörnsson, varamaður/vefsíðustjóri (´09)
Karl Jónas Smárason, varamaður (´09)
Lög Íslendingaflagsins í Kaupmannahöfn
1. grein
Félagið heitir Íslendingafélagið í Kaupmannahöfn. Heimilisfang félagsins er: Hús Jóns Sigurðssonar, Øster Voldagade 12, 1350 København K.
2. grein
Tilgangur félagsins er að gefa Íslendingum, sem í Danmörku dveljast, tækifæri til að koma saman og hafa af því skemmtan og fróðleik. Skal reynt að hafa þá fundi við hæfi sem flestra. Að öðru leyti skal félagið leitast við að efla samheldni Íslendinga í Danmörku, styrkja aðra félagsstarfsemi Íslendinga hér í landi og styrkja tegsl þeirra við föðrulandið.
3. grein
Félagar geta orðið:
1) allir Íslendingar,
2) allir þeir, sem sérstakan áhuga hafa á íslenskum málum.
Þó hefur stjórnin vald til að synja mönnum um inngöngu í félagið eða víkja mönnum úr því, ef ástæða er til.
4. grein
Stjórnin getur meinað utanfélagsmönnum aðgöngu að fundum félagsins, eða krafið þá hærri aðgangseyris en félagsmenn eru krafðir um.
5. grein
Skuldlausir félagsmenn frá síðasta reikningsári hafa einir atkvæðisrétt og kjörgengi á aðalfundi. Hverju árgjaldi fylgir eitt atkvæði.
6. grein
þrenns konar árgjöld skulu ákveðin á aðalfundi hvert ár. Grunnárgjald gildir fyrir einstaklinga. Fjölskylduárgjald gildir fyrir tvo fullorðna og skal vera fjórðungi til þriðjungi hærra en grunn árgjald. Sérstakt árgjald alraðra, sem nema skal í hæsta lagi þriðjungi grunnárgjalds, gildir fyrir félaga eldri en 67 ára og maka þeirra. Allir einstklingar sama árgjalds, þar með talin börn yngri en 18 ára, skulu hafa sama heimilisfang.
7. grein
Aðalfundur skal haldinn fyrir októberlok ár hvert og skal til hans boðað með auglýsingu í Jónshúsi með a.m.k. 30 daga fyrirvara.
Dagskrá aðalfundar skal vera á þessa leið:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla um starfsemina á liðnu ári.
3. Reikningar lagðir fram
4. Lagabreytingar
5. Stjórnar- og nefndarkosningar
6. Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara til eins árs
8. Ákvörðun árgjalda
9. Önnur mál.
8. grein
Stjórn félagsins skal boða til aukaaðalfundar, ef henni þykir ástæða til eða ef 30 félagar eða fleiri krefjast þess og greina ástæður. Skal til hans boðað með a.m.k. 14 daga fyrirvara. Dagskrá aukaaðalfundar sé samkvæmt fundarboði. Atkvæðisrétt á fundinum hafa þeir félagar, sem skuldlausir eru 2 vikum fyrir fundinn. Aukaaðalfundur getur ekki samþykkt lagabreytingar eða tekið ákvörðun um upplausn félagsins.
9. grein
Í stjórn félagsins sitja 5 menn, kosnir á venjulegum aðalfundi til eins árs í senn. Stjórnin skiptir sjálf með sér vekum og kýs úr sínum hópi formann, varaformann, gjaldkera og ritara. Ritari heldur fundargerðir á stjórnarfundum og skulu þær lesnar upp á fundi og samþykktar og undirskrifaðar af formanni og ritara. Við brottför stjórnarmanns getur stjórnin valið sér mann til næsta aðalfundar.
10. grein
Reikningsár félagsins er frá 1. október til 30. september. Félagssjóður skal varðveittur í innlánastofnun í Kaupmannahöfn Meiriháttar greiðslur úr félagssjóði, sem ekki varða starfsemi félagsins skulu samþykktar fyrirfram á aðalfundi. Endurskoðaðir reikningar skulu liggja fyrir í Húsi Jóns Sigurðsonar minnst 5 dögum fyrir aðalfund, svo félagsmönnum gefist kostur á að kynna sér þá.
11. grein
Félagið verður ekki leyst upp, nema það sé samþykkt á tveim lögmætum aðalfundum í röð. Skulu þá eignir þess renna til einhverra íslenskra stofnana eða starfsemi eftir nánari ákvörðun síðari aðalfundar.
12. grein
Stjórnin skal velja svo fljótt sem þurfa þykir einn eða fleiri fulltrúa úr sínum röðum til að annast samskipti við önnur félög.
13. grein
Lögum þessum má aðins breyta á lögmætum aðalfundi. Til lagabreytnga þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða. Í öllum öðrum málum ræður afl atkvæða. Lagabreytingartillögur skulu berast til stjórnar félagsins a.m.k. 14 dögum fyrir aðalfund, skriflega og undirritaðar af flutningsmanni. Breytingatillögur þar við skulu berast fundarstjóra skriflega og undirritaðar af flutningsmanni.
14. grein
óheimilt er á nokkurn hátt að veita utanaðkomandi aðilum aðgang og afnot af félagsaskrá Íslendingafélagsins, nema að slík afnot þjóni augljóslega hagsmunum félagsins og félögum þess og brjóti á engan hátt í bága við lög um meðferð félagaskráa í Danmörku.
15. grein
Lög þessi öðlast þegar gildi
Kaupmannahöfn 27. október 1995
Breytt 1996
Breytt 2003
Breytt 2004
Breytt 2005
Bókasafn Íslendinga í Kaupmannahöfn
Bókasafnið er opið á miðvikudögum milli kl. 18 og 20
