Íslendingafélagið

í Kaupmannahöfn

Jónshús í Kaupmannahöfn

Íslendingafélagið í Kaupmannahöfn   ::   Øster Voldgade 12   ::   1350 København K   ::   email: info [hjá] islendingafelagid.dk   ::  


Viðburðir

 

28. mars 2010 - Páskabingó Íslendingafélagsins í Jónshúsi.

Páskabingó í Jónshúsi 2010Troðið var út úr dyrum í Jónshúsi, þegar Íslendingafélagið stóð fyrir páskabingói 28. mars. Í verðlaun voru páskaegg í boði Íslandsfisk í Svíþjóð og Ishavsfisk á Amager, auk þess sem félagið hafði sjálft útvegað nokkur egg. Ánægjulegt var að sjá hversu margir skemmtu sér vel.

 

 

 

 

Helgin 30. - 31. janúar 2010 - Miðasala á þorrablót Íslendingafélagsins í Jónshúsi.

Íslendingafélagið seldi miða á þorrablót félagsins þann 20. febrúar nk. helgina 30. - 31. janúar.

 

31. janúar 2010 - Opið hús í Jónshúsi, þar sem Íslendingar gátu mæst og fylgst með leik Íslands og Pólands í undanúrslitum EM í handknattleik um bronsið.

Ekki voru margir samankomnir til að upplifa sigur Íslands á Pólandi. Sennilega vegna þess að tilkynning um opið hús var seint á ferðinni, sem og að vetur konungur lét af sér vita þennan dag. Skemmst er frá að segja að Íslendingar unnu Pólverja í leik sem framan af virtist stefna í stórsigur Íslands, en varð hins vegar mjög spennandi í lok leikjarins. Ísland vann með 29 mörkum gegn 26 mörkum Pólverja.

 

30. janúar 2010 - Fjölmenni í Jónshúsi að fylgjast með leik Íslands og Frakklands í undanúrslitum EM í handknattleik

Fjölmennt varí Jónshúsi til að fylgjast með leik Íslands og Frakklands í undanúrslitum EM í handknattleik. Því miður töpuðum við að þessu sinni. Leikurinn fór 28 - 36 Frökkum í vil.

 

Opið hús í Jónshús 23. janúar 2010 við EM í handknattleik milli Íslands og Danmörku. Ísland vann 27 gegn 22 mörkun Dana23. janúar 2010 - Fullt hús í Jónshúsi að fylgjast með leik Íslands og Danmerkur í EM í handbolta

Fullt hús var í Jónshús, laugardaginn 23. janúar, til að fylgjast sameiginlega með leik Íslands og Danmerkur í EM í handbolta. Leikurinn var sýndur á breiðtjaldi. Stemmningin var góð. Íslendingar unnu jú leikinn 27 gegn 22 mörkum.

 

 

 

5. desember 2009 - Tvö jólaböll á Norðurbryggju

Haldin voru tvö velheppnuð jólaböll á Norðurbryggju. Því miður varð allt uppselt á bæði jólaböllin með skömmum fyrirvara. Þeim sem tókst að næla sér í miða, skemmtu sér hins vegar afar vel og ekki síst börnin, sem ljómuðu öll þegar jólasveinarnir birtust.
Því miður á Íslendingafélagið ekki ljósmynd fra jólaböllunum. Það væri því vel þegið ef einhver gæti sent ljosmynd af öðru jólaballinu, sem væri hægt að setja hér til hægri við textann.

 

28. nóvember 2009 - Jólamarkaður í Jónshúsi

Jólamarkaður í Jónshúsi 200928. nóvember 2009 var haldinn mjög vel heppnaður jólamarkaður í Jónshúsi. Þar var á boðstólunum ýmis konar varningur s.s. innflutt Egils appelsín og malt, heimabakstur s.s. íslenskar kleinur, seitt rúgbrauð og íslenskir snúðar og margt fleira gómsætt. Á tímabili var allt troðið út úr húsi.
Íslendingafélagið var með borð, þar sem fólki bauðst að skrá sig í félagið, ásamt sem að mögulegt var að ræða við þá stjórnarmeðlimi som voru til staðar. Ísleindingafélagið vill vekja athygli á því, að skráning sem er eldri en frá 2009 er glötuð. Til þess að skrá sig að nýju í félagið, er fyrst um sinn auðveldast að senda félaginu tölvupóst. Í framtíðinni bætist þó við kerfisaðgerð á heimasíðuna til sjálfvirkrar skráningu í félagið, sem kemur til að auðvelda alla félagsskráningu og uppfærslu á félagaskránni.

 

28. október 2009 - Aðalfundur Íslendingafélagsins í Kaupmannahöfn

Aðalfundur Íslendingafélagsins í Kaupmannahöfn var haldinn í Jónshúsi 28. október 2009.
Ágæt þáttaka var á fundinn og góð stemmning. Fundardagskráin var samkvæmt samþykktum félagsins. Á síðunni "Um félagið" má sjá hverjir eru kosnir í stjórn félagsins.

 

3. október 2009 - Málverkasýning Kristjáns Eldjárns

Kristján Eldjárn við hlið eins af málverka sinnaListmálarinn Kristján Eldjárn hélt sýna fyrstu opinberu málverkasýningu á Borgergade i Kaupmannahöfn þann 3. október 2009. Sýninguna prýddu margar flottar myndir, m.a. myndin hér til við hliðina, sem listamaður stendur við. Fjölmargir nýttu sér tækifærið o g skoðuðu málverkin og spjölluðu við listamanninn og aðra gestkomandi.

Áhugasömum er bent á heimasíðu Kristjáns www.keldjarn.com.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

20. júní 2009 - Þjóðhátíð Íslendinga í Kaupmannahöfn á Femøren

Þjóðhátíð Íslendinga í Kaupmannahöfn á Femøren í blíðskaparveðri, ef frá eru taldir örfáir rigningardroparÞann 20. júní 2009 var þjóðhátíð Íslendinga í Kaupmannahöfn haldin á Femøren við Amagarströnd.
Mikill fjöldi gesta mætti á staðinn, enda var blíðskaparveður, sem einungis var rofið með örlitum rignarskúr.
Í boði voru íslenskar pylsur, bjór, gos, kaffi, íslenskur bakstur, samlokur, íslenskt handverk og hönnun.
Meðal skemmtiatriða voru ræða sendiherrafrúr Íslands í Kaupmannahöfn, fallega fluttur söngur af kórnum Stöku, trúbador, hljómsveitin Agent Fresco og töframaðurinn Jón Víðis. Hoppukastalinn var einnig mjög vinsæll meðal barnanna.